Leita í fréttum mbl.is

Illa þýdd síðufylling

Skelfing er leiðinlegt að lesa svona hrat. Geirsbókarþýðing. Danskur greinir ´´hins´´, vitlaus sögn, móðirin ´´verzlar´´ ékki í matinn, hún kaupir í matinn.Kaupmaðurinn verzlar með vöru, viðskiptavinir kaupa. Brighton er ekki á ´´Bretlandseyjum´, borgin er í Englandi.

Yfirlesarar verða að vakna snemma til að leiðrétta svo delluskrif.

 

 


mbl.is Hárprúðasta ungbarnið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er furðuleg frétt

Þetta er stórfurðuleg frétt. Erlendir læknar gera tilraun í gervifrjóvgun. Kári Stefánsson, sem hefur gott vit þessum málum,segir þetta stórmerkilegt, sem það eflaust er.

En fréttinni fylgir dramatísk stúdíómynd af Kára,rétt eins og hann hafi verið aðalmaðurinn og hetjan í þessu.

Svo er auðvitað danskur greinir greininni,´hinn þriggja...´.

Ég ætla að láta taka dramatíska mynd af mér, þar sem ég horfi fránum augum til framtíðarinnar,til að senda netmogga, ef einhverjum þar skyldi detta æi hug að að spyrja mig um álit mitt á Hillary og Trump.

 


mbl.is Kári himinlifandi yfir kjarki læknanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

óþarfa villur

Hér enn ein frétt með danskan greini. Er ekki nokkur leið að kenna fréttariturum að skrifa á  íslenzku? Íslenzk tunga er alveg sérstæð að því leyti að hún notar viðfestan greini, sem tekur kyni, tölu og föllum. Svo einfalt er það. Þetta endalaus bull með hin og hinn er þreytandi.

Þó danska og enska hafi lausa greina má ekki hlaupa í orðabók og þýða þá hráa.

Svo er það ofnotkunin á samanburðartengingunni EN sem er ofnotuð í mbl.is. Í þessarri frétt er hín notuð tvisvar og í bæði skiptin ranglega notuð.

Þetta er kannske ekki stórmál en þetta er eins og steinvala í skó.


mbl.is Fagnaði 105 ára afmælinu með föngulegum slökkviliðsmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjum kemur þetta við?

Hvernig eru fréttir valdar? Hérna er nauðaómerkileg frétt um mann,sem enginn þekkir og sem kemur islenzkum lesendum ekkert við. Ekki er nóg með það, heldur er fyrirsögnin Geirsbókarþýðing. Að stíga til hliðar er ekki íslenzka nema að því leyti að orðin eru íslenzk. Maðurinn er að hætta, hann hefur verið rekinn, hann hefur sagt af sér.

Ég hef bent á þetta áður og á eflaust eftir að gera það aftur. Ritstjóri mbl.is ætti að lesa ábendingar lesenda um málfar og benda þeim, sem reit villu, á hana.

Þetta virðist ekki vera gert og vitleysur eins og ´áð stíga til hliðar´´leyfast enn.


mbl.is Forstjóri Viacom stígur til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Kvenkyns starfsmaður" segir í fréttinni.

Eitthvað finnst mér þetta ambögulegt.Vðri ekki nær að segja "starfsstúlka" eða "starfskona"?

Hvað segið þið hinir?

 


mbl.is Skaut tvo til bana á sjúkrahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Tímapúnktur" er mál-og hugsunarvilla.

Orðið "tímapunktur" er mál-og hugsunarvilla, sem hefur laumast inn í málið með hjálp illa menntaðs blaðafólks.

Þetta er orðrétt (Geirsbókar) þýðing á "point in time" sem illa menntaðir Ameríkanar láta út úr sér til að reyna að sýnast menntaðir.

Þessu "point in time" fylgir alltaf annaðhvort "this" eða "that". "This point in tíme" þýðir einfaldlega "núna" og "that point in time" þýðir "þá"

Skora ég á  starfsfólk mbl.is að láta þessa vitleysu aldrei sjást aftur.


mbl.is Rétta skrefið á þessum tímapunkti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér vantar einkaframtak.

Það er skiljanlegt að þessarri beiðni hafi verið hafnað.Gamli garðurinn er friðaður.

Hinsvegar væri lafhægt að ssetja upp annan grafreit á lóðinni og selja útlendingum legstað.

Þetta gæti orðið nokkurskonar Bláa Lón fyrir framliðna. Þarna er engin ljósmengun og norðurljósin því skær og góð.

Skora ég  á einhvern okkar mörgu athafnmanna að koma þessu í verk.Setja upp þvertrúarlega byggingu og hvað annað, sem til þarf. Jarðarfarir hér í Ameríku eru rándýrar, aldrei minna en tíu þúsund dali,oftast meir. Svo gætu okkar ágætu leikarar sett upp víkinga útfarir og haft senur um daglegt líf framliðinna víkinga í Valhöll. Ég sé fyrir mér heilt þorp þarna innan fárra ára. Svo má setja upp líknarheimili fyri þá, sem vilja spara á flugfarinu,það kostar minna fyrir lifandi farþega en hina.

 

 

 

 


mbl.is Synjað um greftrun í Krýsuvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Staðsetja manninn" segir í fyrirsögn.

Ferðamaðurinn, sem féll í gjána, er látinn.Í Ífréttinni kemur það ekki fram.Þar er talað um að maðurinn hafi fundist og unnið sé að því að bá honum upp. Það var lík hans, sem fannst og unnið er að ná því upp.


mbl.is Hafa staðsett manninn í Sveinsgili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afturábak og útá hlið, Karíóka

Alltaf koma mér  þessi orð í hug þegar moggabörnin nota Geirsbók til að þýða ensku orðin "step aside" þegar einhver segir af sér eða lætur viljandi af störfum.

Það er margbúið að benda þeim á þessa vitleysu en þau láta sér ekki segjast.Ætli maður verði ekki að biðja hann Davíð um að hnippa í þau.

 


mbl.is Keisarinn ætlar að stíga til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

3000 ára gamall kirkjugarður, það munar ekki um það´

Þeir hafa verið forsjálir þessir fílistear, að búa til kirkjugarð eitt þúsund árum áður en kirkjur komu til sögunnar.

Kannske menn komi niður á þyrlupall þegar farið verður að grafa í þessum nýfundnu klausturrústum fyrir vestan.

Líklega hefur þýðandi mis-þýtt orðið cemetery, sem getur þýtt bæði grafreitur og kirkjugarður.

 


mbl.is Finnst Golíat í kirkjugarðinum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Geir Magnússon
Geir Magnússon
Höfundur er fyrrum fisksali í Ameríku. \%a Býr í Pennsylvaniu og hefur hæns sér til skemmtunar.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband