Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2011

Glæpir geta ekki ´sótt sig í veðrið´. Glæpir geta aukist þegar glæpamenn sækja sig veðrið.

Skelfiing er illa komiðð fyrir ástkæra, ýlhýra málinu þegar blaðamaður kan ekki að fara með jafn einfaldan hlut og þetta orðtak,að sækja sig í veðrið. Venjulega notað um fólk en mætti kannske nota líka um dýr, en alls ekki um hugtök eða atburðslýsingar.
mbl.is Tölvuglæpir sækja í sig veðrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skelfilegar eru þessar enskuslettur

Í þessari frétt segir að maður hafi sezt bakvið stýri í bíl. Á Íslandi sitja menn undir stýri en ekki bakvið það.

Hinsvegar sezt Kaninn behind the wheel. Eru allir prófarkalesarar dauðir og dottnir uppfyrir?


mbl.is Bílum stolið í Þorlákshöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hægt að hafa rangt vð með heiðarlegum hætti?

Í fréttinni af golfmótinu segið frá kylfingi,sem setttur var í keppnisbann fyrir að hafa haft " rangt við með óheiðarlegum hætti".

Samkvæmt þessu virðist vera hægt að hafa rangt við með heiðatlegum hætti.


mbl.is Þyngsti dómur síðari ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er til tjónlaus skemmd?

Í frétt um ölvunarasktur segir að bytturnar hafi hvorki ollið tjóni eða skemmdum. Er merkingarmunur á þessum tveimur orðum?
mbl.is Ágreiningur í gleðskap
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna er haldið í Þjóðkirkjuna?

Af og til sé ég fréttir um kirkjumál á Íslandi, venjulega slæmar fréttir. Þá kemur mér alltaf í hug spurningin hvers vegna er verið að halda í þennan uppdagaða draug? Ég tel ekki nokkurn vafa á því að upptaka kristni og afnám trúfrelsis á Íslandi árið 1000 sé mesta böl þjóðarinnar, verra en eldgos og plágur.Þjóðin var kúguð með lýgi um helvíti og himnaríki. Deyjandi fólk var blekkt til að gefa eigur sínar til kirkjunnar og skilja fjölskylduna eftir snauða.Mér finnst löngu kominn tími til að skera á öll tengls milli kirkju og ríkis og leyfa henni að sigla sinn sjó. Þeir, sem vilja fara í kirkju, geta þá borgað presti og haldið við húsakynnum.Safnaðarlíf myndi blómgast og allir yrðu ánægðir.


mbl.is Gera ekki athugasemdir við Þorláksbúð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Geir Magnússon
Geir Magnússon
Höfundur er fyrrum fisksali í Ameríku. \%a Býr í Pennsylvaniu og hefur hæns sér til skemmtunar.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband