Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2015

En hvar?

EÞetta er furðulegt. Erlend frétt um spillingu, með nöfnum manna og hvar í flokki  þeir standa en ekki minnst einu orði á hvar þetta átti sér stað.


mbl.is Fimmtán ár fyrir spillingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

það verður að finna betra starfsheiti.

Ég er algjörlega á móti því að kalla þessa konu "maddömu" Það orð hefur alltaf verið notað um eiginkonur vígðra manna, presta og biskupa.

Það hlýtur að vera hægt að finna betra orð yfir þessa atvinnugrein. Hórmangari var notað um karlmenn í þessari starfsgrein og mætti vel nota það. Það er að vísu karlkyns en það ætti ekki

að skipta máli. Við notum karlkynsorð yfir ýmsar starfsgreinar án tillits til kyns, eins og til dæmis flugstjóri, læknir og leiðbeinandi.


mbl.is Minnisbók Hollywood-maddömunnar á uppboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Daninn enn að verki?

Skelfing er að sjá þennan danska greini í hverri fréttinni af annarri. Vita þessir

blaðamenn, ef blaðamenn skyldi kalla, að "hinn"sem gtrinir er danska. Íslenzkur greinir er

viðfestur.


mbl.is Lífstíðarfangelsi fyrir að drepa hjólreiðamann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Danskur blaðamaður að verki?

Þessi frétt hlýtur að hafa verið skrifuð af Dana. Greinirinn "Hinn" er

danskur greinir. Íslenzkur geinir er viðskeyttur.

Blessuð reynið að muna þetta.

 


mbl.is Lést við að taka „selfie“ í Taj Mahal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Börn á flótta eru flóttabörn

Mér finnst réttara að nota orðið flóttabörn, þegar rætt er börn meðal flótafólks.

Börn á flótta ætti að nota um aðrar aðstæður, þegar b0rn væru að flýja nálæga hættu.


mbl.is 20 börn hurfu sporlaust í Malmö
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Gróðurhúsáhrif eru ósönnuð" og "Darwin var kleifhugi" verða núna fyrirsagnir National Geographic.

Þetta eru slæmar fréttir fyrir þá, sem meta hlutlausar vísindafréttir. Fox er málpípa auðvaldsins og berst gegn náttúruvernd. Þáttakynnendur verða ekki lengur einhverjir leiðinlegir vísindamenn heldur gálulegar miðaldra konur, stuttklæddar og greinilega þjáðar af átröskun.


mbl.is Áhyggjur af kaupum Fox á National Geographic
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Geir Magnússon
Geir Magnússon
Höfundur er fyrrum fisksali í Ameríku. \%a Býr í Pennsylvaniu og hefur hæns sér til skemmtunar.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband