7.5.2016 | 00:13
Heldur kauðaleg þýðing
Svona greinar á að stytta og endursegja en ekki að þýða orðrétt með hjálp orðabókar.
Nenni ekki að fara út í sparðatíning en hvað sagði maðurinn á ensku í greinarlokin, sem blaðamaður þýðir "bilun"? Eins er með þá staðhæfingu að ekki hafi verið ráðist á Ísland í 70 ár. Er þá verið að tala um hernám Breta 1940? Það var ekki árás.
Töldu að dagar þeirra væru taldir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2016 | 07:40
Furðuleg frétt
Þetta er einkennileg frétt og sérstaklega illa þýdd.Orðaröð er röng. Hvað merkir orðið "áskoranir" hér? Þýðandinn virðist ekki vita að enska orðið "challenge" sem ég geri ráð fyrir að hafi verið í enska tekstanum getur líka þýtt vandamál, mótlæti og fleira. Svona nokkuð á ekki að birta í mbl.is.
Ala dóttur sína upp í yfirgefnu húsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2016 | 10:03
Kom þetta fram á miðilsfundi?
Þetta er nú meiri langlokan um lítið efni. Ég hnaut um orðið "miðillinn" framarlega í fréttinni. Kom þetta fram á draugafundi?
Faðir erkibiskupsins ritari Churchill | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2016 | 08:39
Hafa stigið fram...?
Er ekki átt við að fórnarlömbin hafi gefið sig fram? " Hafa stigið fram" er Geirsbókarþýðing.
Yfir 100 fórnarlömb stigið fram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2016 | 10:28
Skelfing er að sjá svona fyrirsögn
Enska orðið "cherrypicking" hefur ekkert með kirsuber að gera. Orðið þýðir "sérval staðreynda", að velja sér eingöngu þær staðreyndir, sem styðja þinn málstað.
Þessi misþýðing minnir mig á blaðamannafund Vigdísar í Köben hér um árið.Einhver "blaðamaður" þýddi danka orðið
Krydsild sem merkir,að ég held, að vera skotmark blaðamanna, sem kryddsíld.
Voru íslenzkir lesendur hissa á að heyra að þeirra ástkæri forseti væri að krydda síld fyrir Baunann.
Enska orðið
Kuldinn við Ísland kirsuberjatínsla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.3.2016 | 22:42
Geirsbókin er lífsseig
Þessa frétt og annað léttmeti á að endursegja en eki þýða orðrétt. Orðið "some" er þýtt sem "nokkur" en hefði átt að vera "einhver".
Verzlun, sem hættir starfsemi, er lokað.
"Lokað sínum dyrum" er Geirsbókarþýðing.
Handtekinn fyrir að skila ekki spólu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2016 | 22:17
Messi þýðing fær verðlaun Una Danska
Er ekki nokkur leið að kenna fréttaþýðendum mbl.is að í íslenzku er ákveðinn greinir ætíð viðfestur.
Ég er að hugsa um að stofna Verðlaunasjóð Una Danska og láta senda kleinu til þessarra vina danskrar tungu,sem sífellt tönnlast á "hinn" eða "hin".
1 árs stúlka hvarf úr rúmi sínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.3.2016 | 07:25
Einkennileg frétt
Þetta er einkennileg frétt. Taskan er sögð í ´" hans eigu" í stað þessa að segja "taska hans"
Svo enda þessi ósköp á tilkynningu á ensku um að lögreglan á Suðurlandi hafi samið þetta bull.
Taskan datt úr strætó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2016 | 00:12
Kýr er nefnifall kú er þolfall og þágufall.
Þessi frétt er unnin af hroðvirkni og sýnir hversu nauðsynlegt það eer að lesa ritað mál upphátt. Hefði það verið gert hefði auka "áður" verið tekið út.
Um skýlaust brot bóndans að ræða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2016 | 10:25
Illa þýdd langloka
Þessi langloka er illa þýdd. Orðið "stýra" er gamalt og gott orð í íslenzku, samanber bústýra, skólastýra og hótelstýra.Rétt hefði verið að segja "flugstýra".
Að segja að einhver hafi lært að fljúga í desember 2013 er eins heimskulegt og hægt er að ímynda sér.Það tekur mörg ár að verða flugstjóri.
"Bannað að keyra" mun þýða bannað að aka bifreið. Að keyra getur þýtt að reka með svipu, að keyra asna.
Þetta hefði betur verið óbirt.
Söguleg ferð til Sádi-Arabíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Mars 2015
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Nóvember 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2009
- Október 2008
- September 2008
- Apríl 2008
Af mbl.is
Viðskipti
- Adani ákærður fyrir mútur og svik
- Félagsbústaðir tapa án matsbreytinga
- Dana tekur yfir markaðsmál Lauf Cycles
- Kerecis-hjón fjárfesta í leiguflugi
- Vextir lækki um 175-200 punkta
- Dr. Bjarni Pálsson til Vinds og jarðvarma
- Icelandair færir eldsneytið til Vitol
- Arkitektar ósáttir við orðalag forstjóra FSRE
- Ný ríkisstjórn þurfi að hafa hraðar hendur
- Indó lækkar vexti