Leita í fréttum mbl.is

"Ofurskál" er eins og "Kryddsíldarveizla" Danadrottningar.

Superbowl þýðir einfaldlega úrslitakeppni deilda og hefur ekkert með skálar að gera. Skálarnafnið byrjaði þegar leikvöllur var byggður í Kaliforníu. Hann var í skálrmynd, kringlóttur með hækkandi sætum.Íslenzka nafnið fyrir þessa íþrótt, ef íþrótt skyldi kalla, er "ruðningur".

Ruðningur byrjaði, þegar almenn skólaskylda var lögleidd. Mörgum sveitapiltinum fannst það hreinasti óþargi að eyða tíma í að læra errin þrjú, eins og lestur, skrift og reikningur eru kölluð hér. Pabbi og afi hefðu verið góðir bændur og bústólpar án þess að kunna þetta.

Til að tæla piltana til menntunar var þeim lofað að mega djöflast í ruðningi í lok skóladags.

Síðan hefur þessi skratti verið ljótur blettur á bandarískri menntun. Stórum og sterkum strákum er hampað og hleypt milli bekkja, ef þeir standa sig vel í ruðningnum. Þetta fer alla leið upp í menntaskóla þar sem ruðningsstúdentar eru stundum ekki vel læsir, þegar þeir fá stúdentsskírteinið. Undanteknigalítið eru þeir frekir ruddar í daglegri umgengni.

Svo er annað, líkamsskemmdirnar.Enginn, sem stundar ruðning í gagnfræða-eða menntaskóla sleppur við ævarandi skemmdir í hnjám, öxlum og fleiri líkamspörtum. Margir fá varandi heilaskemmdir vegna endrtekins heilahristings og það svo að atvinnumenn í "íþróttinni" hætta að þekkja sig í spegli uppúr þrítugsaldri. Ljótur "leikur" að tarna.


mbl.is Ævintýralegur sigur New England
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki nokkur leið að losna við þennan skratta?

Þessi lélega þýðing úr ensku, að stíga til hliðar, ætti aldrei að sjást í íslenzku máli, nema verið sé að tala um kurteisan mann, sem mætir eldri konu á mjórri gangstétt.

Menn hætta í starfi, segja af sér eða eru reknir á kurteisan hátt.

Voru þessir tilhliðarstignu skátahöfðingjar reknir eða hvað? Mættum við fá meira að vita.


mbl.is Lýstu yfir vanþóknun á starfsháttum Braga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og tvö börn séu að segja frá

Þetta er eins og upptaka af tveimur börnum að segja frá, samtímis. Setningabrot,  máævillur og endurtekningar.

Flýtirinn svo mikill að gamla og góða reglan, að lesa yfir upphátt, áður en slegið er á "senda" er þverbrotin.

 


mbl.is Útiloka ekki þriðja árásarmanninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Illa þýtt og í gæsalöppum

Enn einu sinni er þýtt mál, og í þessu tilfelli illa þýtt, sett í gæsalappir.

Gæsalappir tákna ætíð að orðrétt sé eftir haft. Þýðing getur því ekki veið í gæsalöppum, viðkomandi mælti ekki þessi orð, hann kann ekki íslenzku. Þýðingin er slæm. Enska orðið mess þýðir ekki tjón, heldur óreiðu. Svo er líka spurningin, hvað þýðir þetta "í tómu tjóni"?


mbl.is „Allt í tómu tjóni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Les enginn yfir þetta fyrir birtingu?

Aðra eins langloku og ruglþulu hef ég ekki lengi séð. Sífelldar endurtekningar á illa þýddu máli.

Hefði átt að skera þetta niður í örfáar, vel skrifaðar setningar.


mbl.is Einstakur viðburður á norðurskautinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er slæmt ef vindur breiðist út.

Blessaðir ruglukollar eru Moggabörnin. "Talsverður vindur er á svæðinu og hætta á að hann breiðist út".

Það væri nú slæmt ef svæðið yrði alvinda.


mbl.is Eldsvoði í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dásamlegt viðtal.

Þetta er alveg dásamleg lesning. Fallegar hugsanir um jól og börn á fallegu máli.  

Þessa grein ætti að sérprenta og gefa verðandi foreldrum, sem oft vita lítið sem ekkert um meðferð nýja borgarans, sem þau eru að eignast.

Hér Í Ameríku er fræg grein um jólasveininn, bréf til telpu, sem hét Virginía. Hún hafði látið í ljós efasemdir um tilveru Santa Claus, sém er nafn jólasveinsins okkar.Ritstjóri blaðs, sem ég held að sé ekki lengur gefið út, sendi henni opið bréf í blaði sínu og fullvissaði hana um að jólasveinninn væri til, það sæist bezt í öllu því, semm gott er gert.Þetta bréf er endurprentað í mörgum blöðum á hverju ári.

Þetta viðtal ætti að endurprenta á hverju ári á aðfagangadag.

 

Gleðileg jól.

 

 


mbl.is Með heila breska herdeild í kaffi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú detta mér dauðar lýs úr höfði.

Þurfa "blaðamenn" mbl.is ekki að hafa að minnsta kosti barnaskólapróf?

Hvernig getur nokkur Íslendingur ruglað saman sögnunum að verzla og að kaupa? Það er hægt að fyrirgefa nýbúum en ekki íslenzkum blaðamanni

Þetta er fyrir neðan allar hellur. Les enginn þetta yfir fyrir birtingu?

Hver einasta frétt ætti að hafa netfang ritara svo hægt væri að senda ábendingu beint. Þá neyðist maður ekki til að rassskella ritara opinberlega.

 


mbl.is Ekki dauð hefð hjá yngra fólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hérna hefur Uni Danski þýtt og notað Geirsbók

Er ekki nokkur leið að kenna fréttafólki mbl.is að nota ekki danskan greini. Þessi frétt er auðsjánlega Geirsbókarþýðing einhvers, sem hefur ekki gott tak á íslenzku.

 


mbl.is Sigraðist á átröskuninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heldur klaufaleg frétt.

Hérna hefur fréttaritari gleymt að lesa yfir upphátt áður en slegið var á "inn".Brautin er sundurgrafin og ónothæf, ekki einungis fyrir sjúkrafligvélar heldur allar flugvélar.Hitt er svo annað mál að þetta kemur sér sérstaklega illa fyrir sjúkraflutninga.

Svo er það tóm vitleysa að þetta sé gert til að "efla flutningsgetu rafmagns". Rafmagn flytur ekkert, rafmagn er flutt. Réttara hefði verið að segja að þarna hafi verið lagður nýr jarðstrengur fyrir rafmagn.


mbl.is Geta ekki lent sjúkraflugvélum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Geir Magnússon
Geir Magnússon
Höfundur er fyrrum fisksali í Ameríku. \%a Býr í Pennsylvaniu og hefur hæns sér til skemmtunar.

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband