15.5.2016 | 18:53
...var líkami í bátnum.
í frás0gn af rannsókn á maraþon sprengingunni í Boston í fyrra er haft eftir vitni
að "líkami" hafi verið í bát. Hér hefur fréttabarnið slegið upp í Geirsbók og séð að
"body" getur þýtt bæði lík og líkami. Auðvitað átti að þýða þetta sem "lík, þetta var dauður maður.
Að mínum dómi ætti aldrei að setja þýðingu úr erlendu máli í gæsalappir.
Gæsalappir tánka að hér sé haft orðrétt eftir mælanda en þýðing getur aldrei verið orðrétt.
Um daginn var jarðskjálfti í Ekvador.Mbl.is birti frétt um þetta. Var sagt frá aldraði konu
sem var bjargað úr rústum. Blessuð konan var svo þakklát að hún ávarpaði björgunarmennina á góðri íslenzku eða svo mátti halda. orð hennar voru á íslenzku og í gæsalöppum.
Það er líkami í bátnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Mars 2015
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Nóvember 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2009
- Október 2008
- September 2008
- Apríl 2008
Athugasemdir
Lúkasarguðspjall "52 Hann gekk til Pílatusar og bað hann um líkama Jesú, 53 tók hann síðan ofan, sveipaði línklæði og lagði í gröf, höggna í klett, og hafði þar enginn verið áður lagður. 54 Það var aðfangadagur og hvíldardagurinn fór í hönd. 55 Konur þær, er komið höfðu með Jesú frá Galíleu, fylgdu eftir og sáu gröfina og hvernig líkami hans var lagður. 56 Þær sneru aftur og bjuggu ilmjurtir og smyrsl. Hvíldardaginn héldu þær kyrru fyrir samkvæmt boðorðinu"
Hábeinn (IP-tala skráð) 15.5.2016 kl. 19:47
Hábeinn, Jesús var ekki dáinn þegan hann var tekinn niður af krossinum og borinn inn í hellinn. Þannig var þetta líkami Jesú, en ekki lík hans. Því að hann var enn á lífi, en meðvitundarlaus vegna eitursins sem hann drakk af.
Pétur D. (IP-tala skráð) 17.5.2016 kl. 18:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.