Leita í fréttum mbl.is

Nafnið á bílunum er rangstafað.

Þessi frétt er merkileg. Hún fjallar um heimsfræga tegund bíla en nafn bílanna er vitlaust skrifað. Tegundin heitir DeLoeran en ekki Delorean.

Bílarnir eru kallaðir "kaggar", sem ég hef alltaf haldið að væri bara notað um tröllslega trukka ætlaða til björgunarstarfa.

Svo má benda á að byggingin í myndinni heitir Alþingishús en ekki alþingishús.

Ég hnaut líka um "þaðan sem" í lok fréttarinnar. Er þetta orðalag rétt? Finnat að það ætti að vera "en þaðan verður..."

Nóg í bili.


mbl.is Aka um Ísland á Delorean-köggum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Guðmundur Ásgeirsson, 8.5.2016 kl. 12:10

2 identicon

DeLorean heitir DeLorean en ekki DeLoeran.

Kaggar eru stórir fólksbílar, glæsikerrur.  "samkvæmt Orðabók um slangur, slettur, bannorð og annað utangarðsmál (1982:60) ‘glæsileg bifreið’ og nefndar eru samsetningarnar kvartmílukaggi og kaggatöffari. Oftast voru kaggarnar stórir amerískir bílar sbr. dæmi úr Tímariti Máls og menningar (1987:107): ,,Ég er að gera upp amerískan kagga, maður.“"  http://www.arnastofnun.is/page/ordpistlar_kaggi

Byggingin í myndinni heitir Alþingishúsið en ekki Alþingishús.

"..ljúka ferðalag­inu á Seyðis­firði, þaðan sem ferðinni er heitið með Nor­rænu til Dan­merk­ur." Er rétt, hefðbundið og almennt notað orðalag.

Hábeinn (IP-tala skráð) 8.5.2016 kl. 12:49

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Annars er þetta augljósasta skýringin á fréttum dagsins af nýjasta frambjóðandanum til embættis forseta Íslands.

DeLorean bílarnir hljóta að hafa lent í umferðarslysi og orsakað rof milli skynjunar og veruleika með þeim afleiðingum að íslenskt samfélag eins og það leggur sig hafi ferðast aftur í tíma til 1. apríl.

Samkvæmt því hlýtur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson að mæta til vinnu stundvíslega í fyrramálið, í forsætisráðuneytið.

Guðmundur Ásgeirsson, 8.5.2016 kl. 13:04

4 Smámynd: Gunnar Magnússon

Þegar gagnrýni er sett fram er gott að athuga hvort maður sjálfur búi í glerhúsi. Nafn bílategundarinnar er rétt stafað en það hefur láðst að hafa hástaf á tveimur stöðum í nafni bílsins. Þar af leiðandi stingur þetta mikið í augun og getur verið ruglandi. Sjónmengun orðsins hefur líklega ruglað Geir eins og raunar mig líka við fyrsta lestur fréttarinnar.

Svo vil ég benda Geir á það að ég eins og hann, hef hæns-ni mér til skemmtunar.

Gunnar Magnússon, 11.5.2016 kl. 15:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Geir Magnússon
Geir Magnússon
Höfundur er fyrrum fisksali í Ameríku. \%a Býr í Pennsylvaniu og hefur hæns sér til skemmtunar.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband