Leita í fréttum mbl.is

það verður að finna betra starfsheiti.

Ég er algjörlega á móti því að kalla þessa konu "maddömu" Það orð hefur alltaf verið notað um eiginkonur vígðra manna, presta og biskupa.

Það hlýtur að vera hægt að finna betra orð yfir þessa atvinnugrein. Hórmangari var notað um karlmenn í þessari starfsgrein og mætti vel nota það. Það er að vísu karlkyns en það ætti ekki

að skipta máli. Við notum karlkynsorð yfir ýmsar starfsgreinar án tillits til kyns, eins og til dæmis flugstjóri, læknir og leiðbeinandi.


mbl.is Minnisbók Hollywood-maddömunnar á uppboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Hórumamma er eina rétta orðið yfir svona konur. Maddama er virðingarheiti, sem fréttamenn ættu ekki að hafa í flimtingum.

Barnaleg skrif þessarar fréttar, sem sennilega er þó einungis þýdd með google transl. af einhverju bandarísku slúðurblaði og reynt síðan að bæta úr þeim orðaforða sem google kann ekki, eru mbl.is til skammar.

Það er ekki eins og fréttamenn geti ekki fundið sér eitthvað betra og uppbyggilegra verkefni. Yfir heiminn og þjóðina ganga nú þau ósköp að lítið mál væri fyrir fréttamenn allra miðla að fylla þá af fréttum og fréttaskýringum um þau mál.

En nei, það er of mikil vinna. Betra bara að fletta erlendum slúðurblöðum, copera ekkifréttir af þeim og reyna svo af heimsku sinni að myndskreyta orðalagið!

Gunnar Heiðarsson, 21.9.2015 kl. 12:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Geir Magnússon
Geir Magnússon
Höfundur er fyrrum fisksali í Ameríku. \%a Býr í Pennsylvaniu og hefur hæns sér til skemmtunar.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband